16.10.1934
Neðri deild: 11. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1698 í B-deild Alþingistíðinda. (2201)

65. mál, verslunarlóð Ísafjarðar

Flm. (Finnur Jónsson):

Ég flyt þetta frv. fyrir einróma áskorun frá bæjarstj. Ísafjarðarkaupstaðar, og miðar það að því að minnka verzlunarlóð bæjarins, sem nú er um 5 km, að stærð og þykir óþarflega stór, um sem svarar 1½ km. af landi. Óska ég, að málinu verði vísað til 2. umr. og allshn.