10.12.1934
Neðri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2580 í B-deild Alþingistíðinda. (3469)

80. mál, eftirlit með opinberum rekstri

Thor Thors:

Ég skal geta þess, að frá því að þetta mál var rætt síðast hér í d. hefir allshn. haldið fund og orðið ásátt um brtt. við frv., og mælist hún því til þess, að það fái að ganga áfram til 3. umr.