19.11.1934
Neðri deild: 40. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2830 í B-deild Alþingistíðinda. (99)

Afgreiðsla þingmála

Sigurður Einarsson:

Ég vil, úr því að kveinstafir eru hafðir hér í frammi um seina afgr. mála, minna á, að eitt af fyrstu frv., sem fram komu, var frv., sem ég bar fram á þskj. 54, um breyt. á l. um kosningar í málefnum sveita og bæjarfélaga. Það er búið að afgr. ein slík lög, en ég vildi gjarnan, að þær hvatningar, sem forseti kann að senda frá sér í sambandi við það, sem hér hefir komið fram, nái einnig til þessa litla frv.