20.12.1935
Neðri deild: 104. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 240 í C-deild Alþingistíðinda. (3650)

151. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Hv. 6. þm. Reykv. segir, að hann hafi ekki viðhaft þau orð, að hann grunaði stj. um ótrúmennsku gagnvart sjávarútveginum, en trúlegt þykir mér, að hann búist við, að kalt andi frá okkur til útgerðarinnar, en ég læt mér slíkar skoðanir í léttu rúmi liggja. Ég læt mér nægja að vísa til þess, sem við höfum gert fyrir sjávarútveginn, og fer ekki lengra út í það mál við þetta tækifæri.