15.11.1935
Efri deild: 70. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í B-deild Alþingistíðinda. (568)

130. mál, fiskimálanefnd o.fl.

Jón Auðunn Jónsson:

Út af fyrirspurn frá hv-. 4. þm. Reykv. vil ég svara honum því, að hann getur snúið sér til hæstv. atvmrh. og fengið að sjá kæru frá mér á samvinnufélag Ísfirðinga, þ. e. á forkólfana, fyrir að hafa dregið fé út úr sinn eigin fyrirtæki til að bjarga því, og notað til þess aðstöðu sína í bæjarstjórn.