21.02.1936
Neðri deild: 5. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í C-deild Alþingistíðinda. (2311)

14. mál, samvinnufélög

Gísli Guðmundsson:

Ég vil aðeins gera það að till. minni, að málinu sé vísað til allshn. Ég kann ekki við, að eins stórt mál og þetta fari til 2. umr. án þess að það sé athugað í n., og því síður sem það var ekki afgr. frá n. á síðasta þingi.