18.04.1936
Efri deild: 51. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 581 í C-deild Alþingistíðinda. (2926)

69. mál, hrafntinna

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég lýsti við 1. umr. minni afstöðu til málsins. Ég get ekki gengið inn á þá principstefnu yfirleitt að veita sérstökum mönnum einkaleyfi til eins eða annars, sem öllum er frjáls aðgangur að. Það geta allir, eins og nú er, flutt út hrafntinnu. Og ég óttast ekki, að það verði svo mikið kapp um þetta manna á milli að það þurfi að veita sérstaklega einkaleyfi til þess að flytja þessa vöru út. Ég mun því eins og áður greiða atkv. á móti þessu máli.