14.12.1937
Sameinað þing: 14. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (1646)

Afgreiðsla þingmála

*Sigurður Kristjánsson:

Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir þá áminningu, sem hann hefir gefið um þessi mál, og loforð hans um að taka hin málin á dagskrá. En ég vil undirstrika, að það er óvenjuleg meðferð á máli, sem hinar tvær till. sæta; því að það er óhugsandi, að nefndin hefði ekki haft tíma til að athuga þær í hátt á annan mánuð, sem þær hafa verið til meðferðar. Það er náttúrlega alls ekki forsvaranlegt.