06.05.1938
Sameinað þing: 27. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 298 í B-deild Alþingistíðinda. (135)

135. mál, fjáraukalög 1937

*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Eins og hv. þm. er kunnugt, hefir það ætíð verið venja að leita heimildar fyrir þeim greiðslum, sem engin sérstök heimild hefir verið fyrir, með sérstökum fjáraukal. Frv. þetta hefir að geyma heimild fyrir þessum greiðslum á árinu 1937. Samtals er þetta kr. 56800.00, sem frv. fjallar um. Sé ég ekki ástæðu til að rekja efni þess nánar, nál. með þeim fyrirvara, að þeir vísi til aths. en óska því vísað til hv. fjvn. Bið ég n. að hraða afgreiðslu þessa þings, þótt áliðið sé.