24.11.1939
Neðri deild: 67. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í C-deild Alþingistíðinda. (2869)

56. mál, áfengislög

*Bergur Jónsson:

Ég er neyddur til, úr því hv. þm. Borgf. gerir þessa fyrirspurn í 2. sinn, að svara þessu. Ég vil lýsa því yfir, að það er alls ekki af því, að nefndin kæri sig um að svæfa málið, að það hefir ekki verið afgr., heldur vegna hins gífurlega annríkis, sem allshn. hefir, en eins og kunnugt er, er til hennar vísað mörgum þeim málum, sem fyrir koma, og annríkið er svo mikið, að henni endist ekki tíminn, en ég skal lofa því, að málið skal verða afgr. eins fljótt og hægt er.