19.04.1940
Efri deild: 43. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 641 í B-deild Alþingistíðinda. (1671)

119. mál, bráðabirgðatekjuöflun fyrir Hafnarfjarðarkaupstað

Magnús Jónsson:

Ég legg til, að málinu sé vísað til fjhn., þar sem frv. um breyt. á l. um skattgreiðslu útgerðarfyrirtækja er ekki enn komið til d., en ég tel, að þessi mál eigi að vera samflota.