01.04.1940
Neðri deild: 27. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 137 í C-deild Alþingistíðinda. (2199)

71. mál, raforkuveitusjóður

Frsm. (Jón Pálmason):

Ég vil bara benda á það, að mér finnst engin ástæða til að fresta meðferð málsins, þó þessi villa hafi slæðzt þarna inn. Ég vil þakka hæstv. forseta, ef hann telur sér fært að leiðrétta þetta í þskj. án þess að brtt. komi fram um það. En þá sé ég ekki heldur ástæðu til að fresta atkvgr. um málið. Villa hefir komizt inn í till., sem ekki hafði fylgi allra flm., en náði þó samþykki deildarinnar.