16.05.1941
Neðri deild: 61. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (1783)

25. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

Frsm. (Gísli Guðmundsson) :

Það nær náttúrlega engri átt, að það yrði lagt hv. 5. þm. Reykv. til lasts, þótt hann tæki aftur brtt, sína. Ég vil endurtaka það, að sjútvn. mælti með frv., áður en því var breytt hér í deildinni, og hv. 5. þm. Reykv. gat þess ekki þá, að hann legði svo mikið upp úr brtt, sinni, að án samþ. hennar yrði hann móti frv: — Ég vonast til, að frv. verði samþ. óbreytt.