14.06.1941
Sameinað þing: 26. fundur, 56. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í D-deild Alþingistíðinda. (3627)

158. mál, styrktarfé til skálda, rithöfunda, vísindamanna og listamanna

*Frsm. (Sigurður Kristjánsson) :

Fjvn. hefur athugað mál þetta, eftir að fyrri umr. fór fram og rökstuðningur flm., þar sem hann tilgreindi sérstaklega, hvaða mönnum væri ætlaður þessi viðbótarstyrkur. N. var sammála um að mæla með samþykkt till., og hef ég því ekki neinu við að bæta. Ég vildi mælast til þess fyrir hönd n., að hv. Alþ. samþ. till. eins og hún liggur fyrir.