04.05.1942
Efri deild: 48. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í B-deild Alþingistíðinda. (561)

2. mál, dómnefnd í kaupgjalds- og verðlagsmálum

Brynjólfur Bjarnason:

Ég vildi mælast til þess við hæstv. forseta, að hann frestaði þessari umr. Það er ákaflega tilgangslaust að standa hér og tala yfir tómum bekkjum. En ef það þykir ekki fært að fresta umr., þá vildi ég mælast til þess, að það væri þá leyft að tala almennt um málið við 2. umr.