21.08.1942
Neðri deild: 11. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í B-deild Alþingistíðinda. (161)

7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Eysteinn Jónsson:

Ég get tekið undir orð hv. síðasta ræðumanns, að það væri freistandi að gera að umræðuefni afnám þessara l., en eins og lýst hefur verið yfir af Framsfl., vill hann ekki tefja það, að meiri hl. þingsins geti komið fram vilja sínum í þessu máli, og mun því ekki ræða það eða óska eftir, að því verði vísað til n. Ég vil því vísa til þess, sem af flokksins hálfu hefur verið borið fram í Ed. og í útvarpsumr. hér í d. Við erum reiðubúnir að stuðla að því, að þetta geti orðið að l. í dag, ef forseta er það áhugamál.