03.09.1942
Neðri deild: 20. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í B-deild Alþingistíðinda. (648)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Bjarni Bjarnason:

Það er út af tveimur málum, sem fóru til fjhn. og ég er flm. að. Öðru málinu var vísað til nefndarinnar 8. ágúst, en hinu 31. ágúst.

Þar sem n. hefur lítið að starfa, vildi ég spyrjast fyrir um, hvort hún hafi ekki tekið þessi mál til meðferðar. Þau eru bæði um rafveitur á Snæfellsnesi.