19.12.1942
Efri deild: 22. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í B-deild Alþingistíðinda. (252)

85. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Gísli Jónsson:

Ég hef nú skýrt afstöðu mína til þessa máls og fylgt því til 2. umr. Þrátt fyrir marga galla, sem ég hef fundið á því og aðrir einnig, mun ég eins og flokksmenn mínir fylgja frv. út úr deildinni í fullu trausti þess, að ríkisstj. noti þennan tíma, sem lögin standa, til þess að koma síðan á meira samræmi milli stétta en frv. þetta ber með sér. Og sérstaklega vil ég lýsa yfir því við hæstv. fjmrh., að þar sem ég hef áhrif utan þings, mun ég ætið verða í samræmi við mína atkvgr. hér, en það breytir í engu minni afstöðu til málsins, þótt ég hafi að ýmsu fundið í mínum ræðum.