11.03.1943
Efri deild: 71. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í B-deild Alþingistíðinda. (766)

116. mál, húsaleiga

Gísli Jónsson:

Út af tilmælum hæstv. forseta vil ég fyrir mína hönd lýsa yfir, að ég sat hér á fundi í gær. Ég er ávallt vanur að rita alla afgreiðslu niður á þingskjöl, en ég hef ekki skrifað á viðkomandi þingskjöl, að afbrigði hafi verið veitt fyrir þeim. Það síðasta, sem ég hef skrifað um atkvgr. í þessu máli, er, að frv. hafi verið vísað til 2. umr. með 12 shlj. atkv. og til n. með 13 shlj. atkv., og ég minnist þess ekki, að atkvgr. hafi farið fram um afbrigði fyrir þessum till.