10.04.1943
Neðri deild: 96. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 747 í B-deild Alþingistíðinda. (984)

140. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forseti (JJós):

Ég hafði vonað, að hægt hefði verið að ljúka umr. nú fyrir kvöldverð, en það verður torvelt að halda næturfund, Bæði var það, að síðustu nótt var næturfundur og erfitt er að halda hv. þm. hér svo lengi nætur. Ég vil því biðja þá hv. þm., sem enn eiga ótalað, að stytta mál sitt eftir föngum, svo að atkvgr. geti orðið lokið á áttunda tímanum.