02.03.1945
Efri deild: 140. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2033 í B-deild Alþingistíðinda. (5721)

Sextugsafmæli tveggja þingmanna

forseti (StgrA):

Áður en gengið er til dagskrár, vil ég leyfa mér að minnast á, að í dag á einn af hv. þm. þessarar d., hv. 2. þm. Árn., sextugsafmæli. Ég vil leyfa mér að óska honum til hamingju á þessum tímamótum ævi hans og óska honum langra lífdaga. Ég vænti þess, að hv. þdm. taki undir þessa ósk mína með því að rísa úr sætum. [Deildarmenn risu úr sætum.]