03.12.1945
Neðri deild: 47. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 1123 í B-deild Alþingistíðinda. (1876)

81. mál, embættisbústaðir héraðsdómara

Ásmundur Sigurðsson:

Herra forseti. Ég skrifaði undir nál. með fyrirvara ekki beinlínis vegna þess, að ég væri á móti því, að byggt sé yfir héraðsdómara. En ég vil benda á það, að margir aðrir starfsmenn ríkisins eiga hliðstæðan rétt til þess, að byggt sé yfir þá. Og Alþ. má búast við því, að þegar gengið er inn á þessa braut með einn flokk starfsmanna ríkisins, þá komi fleiri á eftir. Og það getur eðlilega endað með því, að ríkið byggi yfir mikinn hluta starfsmanna sinna.