29.04.1946
Sameinað þing: 44. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í D-deild Alþingistíðinda. (4409)

210. mál, herstöðvamálið

Haraldur Guðmundsson:

Hæstv. menntmrh. getur fullvissað sig um það, að þeirri fyrirspurn, sem hann bar fram til Alþfl., verður svarað á sínum tíma og á réttan hátt. Hins vegar má geta þess, að Sósfl. tók upp stefnu Alþfl. í þessu máli og má nú vera, að hæstv. menntmrh. og félögum hans þyki nú eitthvað á skorta um sína framkomu áður og vilji nú um bæta.