30.01.1947
Neðri deild: 62. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1343 í B-deild Alþingistíðinda. (1625)

141. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Gylfi Þ. Gíslason:

Með skírskotun til grg. hæstv. forsrh. og jafnframt til þess, að ég hef aflað mér upplýsinga um, að félögum framleiðenda hefur yfirleitt alls ekki verið meinaður innflutningur á sínum nauðsynjum, og engin ástæða er til að halda, að þeim verði fremur meinað það á næstunni, segi ég nei.