17.03.1947
Efri deild: 95. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1700 í B-deild Alþingistíðinda. (2862)

10. mál, útsvör

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég hef hér á þskj. 12 flutt frv. til l. um breyt, á l. um útsvör. Þetta mál var sent til allshn. þann 10. október s. l. Ég skal ekki fara mörgum orðum um efni frv., en ég hygg, að ekkert mál hafi fengið slíka meðferð í Alþ. sem þetta mál.

Ég vil nú mælast til þess við hæstv. forseta, að ef ekki tekst að fá málið úr n., að hann taki málið fyrir á næsta fundi. Nál. var lofað 15, febr., en það er ekki komið enn.