16.12.1946
Neðri deild: 38. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í C-deild Alþingistíðinda. (3789)

90. mál, búnaðarmálasjóður

Sigurður Bjarnason:

Ég hef í allri meðferð þessa máls hér í hv. þd. viljað sem minnst afskipti hafa af máli þessu. Ég er sömu skoðunar nú og ég var á síðasta Alþ. um þetta mál. Ég greiddi ekki atkv. um málið sjálft á síðasta þingi. — Ég mun halda afstöðu minni óbreyttri gagnvart þessu máli, sem ég hafði á síðasta þingi til þess, og ekki taka þátt í meðferð þess við atkvgr. En ég tel samt ekki rétt að varna málinu þinglegrar meðferðar. — Ég greiði ekki atkv.