21.05.1947
Sameinað þing: 56. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í D-deild Alþingistíðinda. (4938)

269. mál, héraðabönn

Forseti (JPálm):

Það eru mjög margar þáltill., sem hafa beðið, og síðast þegar þessi þáltill. var til meðferðar, voru 2 þm. á mælendaskrá, þegar fundartími var búinn.

Þessi till. hefur verið tekin af dagskrá eftir ósk manna, sem hafa viljað vera við umr. Nú er ég búinn að halda þennan fund lengur en heimild var til, og nú er hér 6. málið eftir, sem þarf að taka fyrir á þessum fundi, en líkur fyrir, að um. það verði ekki miklar umr., því að þar horfir öðruvísi við en um það mál, sem hv. 3. landsk. talar um, sem er stórt deilumál. En það skal verða á dagskrá á hverjum fundi í Sþ. hér eftir, sem haldinn verður, þar til það verður afgr.