05.05.1947
Sameinað þing: 50. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 254 í D-deild Alþingistíðinda. (5047)

282. mál, varahlutar til bifreiða

Jónas Jónsson:

Ég vil taka undir það, sem hv. 2. þm. Árn. sagði, að þetta mál verði ekki rætt mikið að þessu sinni, vegna þess að ég sé, að bæklingur, sem þm. til þessa hafa ekki átt kost á að kynnast, er nú fyrst að komast í þeirra hendur. Þetta er merkileg skýrsla, útbúin af öllum okkar aðalinnflytjendum, og þar koma fram upplýsingar, sem eru miklu merkilegri en þær, sem allshn. hefur átt kost. Ég vil þess vegna ekki ræða málið frekar nú, en óska, að það verði tekið af dagskrá.