21.05.1947
Sameinað þing: 56. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í D-deild Alþingistíðinda. (5205)

307. mál, Austurvegur

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Ég ætla ekki, vegna þess hvað tíminn er naumur, að segja annað en það, að ég vildi leggja til, að málinu yrði vísað til n., og get ég þá gefið n. upplýsingar um það, sem í málinu hefur gerzt, og vil svo síðar leggja fyrir þingið þær niðurstöður, sem hún kemst að.