18.03.1948
Efri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1105 í B-deild Alþingistíðinda. (1675)

84. mál, sóknargjöld

Páll Zóphóníasson:

Mér skildist á hæstv. ráðh., að hann hefði ekki heyrt athugasemdir mínar við 3. gr., og mun hann fallast á þær, þegar hann hefur heyrt þær. Sumar sóknirnar ná yfir tvo eða þrjá hreppa, og útsvörin eru mismunandi. Það verður þá að leggja á með hliðsjón af því, að gjöldin komi hlutfallslega rétt á. Hæstv. ráðh. var ekki við. áðan, og ég vildi því lofa honum að heyra þetta.