05.12.1947
Sameinað þing: 28. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í D-deild Alþingistíðinda. (3650)

105. mál, Faxaflóasíld

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það síðasta, sem hæstv. sjútvmrh. sagði, var að tregðu gætti í stjórn síldarverksmiðjanna. Ég vil styðja þá till., sem tveir hv. þm. hafa komið fram með, að skipuð verði sérstök nefnd fyrir Faxaflóasíldina. Það er nauðsynlegt. Og það sýnir sig nú, að það hefði verið betra að samþ. till. Sósfl. í fyrra, að hafa aðra stj. á þessu máli. Og þegar þessi till. kemur fram, sem boðuð hefur verið, gefst tækifæri til þess, og stjórnin hefur aðstöðu til þess, því að þarna þarf að skipta um.