14.05.1949
Sameinað þing: 73. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1150 í B-deild Alþingistíðinda. (1510)

42. mál, fjárlög 1949

Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég gæti vel sætt mig við, að annarri og betri skipan væri komið á þann rétt, sem slíkri verzlun fylgir, en hins vegar get ég ekki sætt mig við það, að þessi réttindi séu í fjárl. með einu pennastriki tekin af öllum, einnig forseta Íslands og þeim mönnum í ríkisstj., sem ber risnuskylda. Ég segi því nei.