09.12.1948
Efri deild: 27. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í C-deild Alþingistíðinda. (3507)

47. mál, menntaskólar

Eiríkur Einarsson:

Herra forseti. Ég vildi mælast til þess, að mál þetta verði tekið af dagskrá af þeirri ástæðu, að ég lenti í minni hl. innan n. og minnihlutaálit mitt er komið til prentunar, en mér var sagt áðan, að það væri ekki enn komið úr prentun. Af þessari tilgreindu ástæðu vil ég fara fram á við hæstv. forseta, að málið verði tekið af dagskrá.