26.04.1949
Neðri deild: 93. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 504 í C-deild Alþingistíðinda. (4023)

108. mál, Framfarasjóður búnaðarsambanda

Ásgeir Ásgeirsson:

Fyrirvari minn merkir það, að ég er á móti frv. af þeirri ástæðu, að ég tel ekki fært, eins og nú er komið fjárhag þjóðarinnar, að lögbinda stórar fjárveitingar fyrir framtíðina. Ég tel, að svona till. hefði átt að koma fram í sambandi við fjárl. og einnig í samráði við fjmrh.