30.01.1951
Neðri deild: 58. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í B-deild Alþingistíðinda. (1267)

47. mál, loðdýrarækt

Ásmundur Sigurðsson:

Þegar ég greiddi atkv. með 5. gr. þessa frv. við 2. umr., — þrátt fyrir það, að búið væri að fella brtt. mína og hv. þm. Dal., — þá gerði ég það í því trausti, að samþ. yrðu hinar sameiginlegu brtt. hv. landbn. Nú hafa þær verið felldar, og þá virðist mér frv. vera í því formi, að verra sé að samþ. það en ekki, og því segi ég nei.