09.11.1950
Neðri deild: 18. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1124 í B-deild Alþingistíðinda. (2312)

77. mál, jeppabifreiðar o.fl.

Flm. (Ásgeir Bjarnason):

Herra forseti. Þetta mál, sem hér liggur fyrir, var lagt fyrir þessa hv. d. í fyrra og náði ekki afgreiðslu, en frumvarpið er lagt fyrir hv. þd. nú á þeim grundvelli, sem það var afgr. frá þessari hv. d. í fyrra, og er það hv. þingmönnum svo kunnugt, að ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um það nú, en legg til, að því verði vísað til 2. umr. og landbn.