19.02.1951
Efri deild: 74. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í C-deild Alþingistíðinda. (3207)

109. mál, erfðalög

Þorsteinn Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég vil taka fram, að ef breyt. á till. er skilin þannig, að stjórnin hafi ekki óbundnar hendur um það, hvaða hátt hún ákveður að hafa um stofnun og rekstur hælisins, tel ég mig ekki bundinn við atkvgr. Ég mun samþ. till. með þessum formála. Ég tel, að það eigi að vera á valdi stjórnarinnar, hvað hún gerir í þessu máli.