06.02.1953
Sameinað þing: 40. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 290 í D-deild Alþingistíðinda. (2735)

215. mál, Hótel Borg

Forseti (JPálm):

Ég vil taka það fram út af þeim átölum hv. þm. Barð., að ég hafi haft einhverjar áætlanir um það sem forseti að knýja þessa till. nefndarlaust í gegn, að ég hef aldrei sagt eitt einasta orð um það. Forseti hefur það ekki heldur á valdi sínu, heldur meiri hl. þm., því að það er, eins og allir vita, venjulegasta leiðin, þótt ein umr. sé ákveðin, að máli sé vísað til n. í millitíðinni og umr. frestað.