19.04.1955
Efri deild: 71. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í B-deild Alþingistíðinda. (642)

120. mál, ríkisreikningar fyrir árið 1952

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Hv. þm. Barð. sagði, að það væri ekki von á góðu, ef ég hefði álíka samvinnu við yfirskoðunarmenn ríkisreikninganna og ég hefði haft við hann núna síðustu mínúturnar, eða eitthvað í þá áttina. Ég vil bara lýsa því yfir, að enn þá hefur það ekki komið fyrir, síðan ég fór að fara með þessi mál, að kosnir hafi verið til þess að vera yfirskoðunarmenn ríkisreikninganna menn á borð við hv. þm. Barð., enda hygg ég, að hans framkoma sé algert einsdæmi hér í þinginu, og því fer betur.