12.02.1957
Sameinað þing: 29. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2366 í B-deild Alþingistíðinda. (177)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. (Áki Jakobsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman á fund, og þar lá fyrir kjörbréf Eðvarðs Sigurðssonar sem 1. varaþingmanns af hálfu Alþýðubandalagsins í Reykjavík. Hún hefur athugað þetta kjörbréf og komizt að þeirri niðurstöðu samhljóða, að það sé rétt, og leggur því til, að það verði samþykkt.