23.02.1959
Neðri deild: 80. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1966 í B-deild Alþingistíðinda. (2401)

Varamenn taka þingsæti

forseti (EOl):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf frá hv. 10. landsk. þm.:

„Með því að ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu 2 –3 vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 144. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður, dr. Gunnlaugur Þórðarson, taki sæti á Alþingi, á meðan ég verð fjarverandi.

Pétur Pétursson.

Til forseta neðri deildar.“

Kjörbréf þessa hv. varaþingmanns hefur verið athugað áður, og tekur hann hér sæti, og býð ég hann velkominn.