14.05.1959
Sameinað þing: 52. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1984 í B-deild Alþingistíðinda. (2475)

Þinglausnir

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Nú þegar þessu þingi er að ljúka, vil ég þakka hæstv. forseta sameinaðs þings skörulega og réttláta stjórn á fundum sameinaðs Alþingis þrátt fyrir þann mikla málefnaágreining, sem hér hefur verið nú á þessu þingi.

Fyrir hönd okkar alþm. óska ég hæstv. forseta og fjölskyldu hans allra heilla og færi honum og hans fólki hlýjar framtíðaróskir frá okkur öllum. Ég bið hv. þm. að taka undir þessi orð með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]