28.11.1959
Neðri deild: 5. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3475 í B-deild Alþingistíðinda. (1674)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir ofl.

Forseti (BGr):

Þessar umr. utan dagskrár hafa á sér nokkurn blæ af almennum stjórnmálaumræðum, og vil ég beina þeim tilmælum til hv. alþm., að þeir reyni eftir föngum að stytta mál sitt og takmarka umr. við það, sem kalla má eðlilegt að talað sé um utan dagskrár.