19.12.1961
Sameinað þing: 31. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2750 í B-deild Alþingistíðinda. (2504)

Þingsetning

Eysteinn Jónsson:

Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir í garð okkar þingmanna og okkar fólks. Þá vil ég þakka hæstv. forseta fyrir mjög góða stjórn á fundum í sameinuðu Alþingi. Loks vil ég — og veit, að ég tala þar í nafni allra hv. þm. — óska hæstv. forseta gleðilegra jóla og góðs nýs árs og þakka fyrir það liðna og bið menn að taka undir þetta með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]