18.12.1962
Efri deild: 34. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1982 í B-deild Alþingistíðinda. (1941)

Þingsetning

forseti (SÓÓ):

Þá eru ekki fleiri mál á dagskrá þessa fundar, og verður þetta því, ef allt fer að líkum, síðasti fundur fyrir þinghlé. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka öllum hv. þdm, fyrir ágætt samstarf, góða fundarsókn og stundvísi það sem af er þessu þingi. Ykkur öllum, utanbæjarmönnum, sem nú hverfið heim, óska ég góðrar heimferðar og góðrar heimkomu. Öllum ykkur og í fjölskyldum ykkar ásamt öllu starfsliði Alþingis óska ég gleðilegrar jólahátíðar, og þeirri ósk fylgir ósk um gott og gæfuríkt komandi ár. Megum við svo öll hittast heil til starfa að loknu þinghléi.