14.12.1962
Sameinað þing: 22. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 448 í B-deild Alþingistíðinda. (315)

1. mál, fjárlög 1963

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Till. sú, sem hér liggur fyrir, er að efni til og orðalagi að heita má óbreytt 1. gr. frv., sem ég flutti í Nd. á þessu þingi. Það frv. fékk eðlilega fyrirgreiðslu, var þar tekið til umr. og vísað til n. og er þar í athugun. Í trausti þess, að frv. fái eðlilega afgreiðslu, segi ég nei við þeirri tili., sem hér liggur fyrir.