11.05.1964
Sameinað þing: 76. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1965 í B-deild Alþingistíðinda. (1561)

Almennar stjórnmálaumræður

Forseti (SF):

Umræðan fer þannig fram í kvöld, að hver þingfl. fær 50 mín. ræðutíma, sem skiptist í 2 umferðir, hin fyrri 25–30 mín., en hin síðari 20–25 mín. Röð flokkanna í báðum umferðum verður þessi: Alþb., Sjálfstfl., Framsfl. og Alþfl. Ræðumenn verða: Fyrir Alþb. í fyrri umferð Lúðvík Jósefsson, í síðari umferð Geir Gunnarsson. Fyrir Sjálfstfl. í fyrri umferð Bjarni Benediktsson og Guðlaugur Gíslason, í síðari umferð Bjartmar Guðmundsson og Pétur Sigurðsson. Fyrir Framsfl: í fyrri umferð Eysteinn Jónsson, í síðari umferð Halldór E. Sigurðsson og Páll Þorsteinsson. Fyrir Alþfl. í fyrri umferð Gylfi Þ. Gíslason, í síðari umferð Benedikt Gröndal.