26.11.1963
Sameinað þing: 21. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2220 í B-deild Alþingistíðinda. (1684)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 26. nóv. 1963.

6. landsk, þm., Davíð Ólafsson, hefur í dag ritað mér é þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Ragnar Jónsson skrifstofustjóri, taki á meðan sæti á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf 1. varamanns landsk. þm. Sjálfstfl., Ragnars Jónssonar, hefur verið rannsakað og þarf því ekki að fara fram rannsókn á því að nýju og tekur hann sæti á þinginu sem 6. landsk. þm., og býð ég hann velkominn.