16.01.1964
Sameinað þing: 34. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2221 í B-deild Alþingistíðinda. (1689)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 16. jan. 1964. Gylfi Þ. Gíslason, 6. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar eð ég verð erlendis, þegar Alþingi kemur saman hinn 16. þ.m., leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að fyrsti varamaður Alþfl. í Reykjavík, frú Katrín Smári, taki sæti mitt á Alþingi, meðan ég verð fjarverandi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns. Sigurður Bjarnason, forseti neðri deildar. Til forseta sameinaðs Alþingis. “

Kjörbréf frú Katrínar Smára liggur fyrir. Ég vil biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. [Fundarhlé.]