04.03.1964
Sameinað þing: 49. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 905 í D-deild Alþingistíðinda. (3367)

174. mál, skipting framkvæmdalánsins

Fyrirspyrjandi (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. fjmrh. fyrir þau svör, sem hann gaf við þessari fsp., að því leyti sem hann leysti úr þeim. Hins vegar fannst mér nokkur galli á gjöf Njarðar, að ekki skyldi gefin sundurliðuð skýrsla um lán til fiskiðjuveranna, eins og til annarra lántakenda í þessum lánaflokki. Hæstv. ráðh. taldi það vera vegna þess, að viðbótarfjárhæð hefði komið til þessara lánveitinga, og mér skilst því, að til þess að fá þá sundurliðun, þurfi þá að gera nýja fsp., sem nái yfir þennan hluta, og verður það þá að bíða betri tíma, og þakka ég fyrir.